Ofurfyrirsætan Heidi Klum sólbrann á afturendanum í sumarfríi á Bahamaeyjum.
Hin þýska Klum, sem er í sumarfríi ásamt kærasta sínum og börnum, birti mynd af rassi sínum á Instagram um helgina. Það lítur út fyrir að Klum hafi gleymt sér í sólinni og brunnið illa.
Fyrir neðan myndina sem Klum birti stóð einfaldlega „ái“.
Á Instagram síðu Klum má sjá myndir úr sumarfríi fyrirsætunnar.