Sér eftir rassa-húðflúrinu

Adrienne Bailon var með Rob Kardashian í tvö ár.
Adrienne Bailon var með Rob Kardashian í tvö ár. mbl.is/AFP

Fyrrverandi kærasta Robs Kardashian sér eftir að hafa látið húðflúra nafn hans á rasskinn sína.

Söng- og leikkonan Adrienne Bailon var í sambandi með Rob frá árinu 2007 til 2009 en hún kom fram í nokkrum Keeping Up With The Kardashians-þáttum á þeim tíma. Bailon viðurkennir að hafa gert mistök með því að fá sér þetta „hræðilega“ húðflúr.

Hin 29 ára Bailon tjáði sig um húðflúrið í spjallþættinum The Real. „Ég hef fengið mér slæm húðflúr í gegnum tíðina. Allir vita að ég er með slæmt rassa-húðflúr, ég veit ekki hvað ég var að hugsa,“ sagði Bailon.

„Tíu stafa eftirnafn. Þetta er mjög slæmt, ég veit. Ekki leika þetta eftir mér.“

Bailon og Rob ákváðu að láta húðflúra nafn hvort annars á sig þegar allt lék í lyndi en Rob fékk sér nafn Bailon á vinstri síðuna.

Söngkonan hefur nú farið í nokkrar laser-meðferðir í þeim tilgangi að losna við húðflúrið. „Þetta er ekki þægilegt. Maður finnur lyktina af holdinu brenna.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir