Brasilísk kona skar getnaðarlim eiginmanns síns af eftir að hún greip hann við framhjáhald með öðrum manni. Konan lét þó ekki til skarar skríða þegar í stað, heldur beið hún þar til nokkrum dögum seinna. Þá setti hún á svið kynlífsleik þar sem hún batt
eiginmann sinn við rúm þeirra.
Þegar hann lá kyrr á rúminu skar hún getnaðarlim mannsins af með skörðóttum hníf. Maðurinn, sem ekki er í lífshættu, mun eflaust sakna þessa mikilvæga líkamsparts en ekki tókst að sauma hann aftur á.