Þungavigtarboxarinn og leikarinn Mike Tyson viðurkenndi í gær að hann hefði logið að fólkinu í kringum sig að hann væri edrú en væri við það að drepa sig á áfengis- og fíkniefnaneyslu. „Ég hef hvorki drukkið né neytt vímuefna í sex daga,“ sagði Tyson. „Fyrir mig er það kraftaverk.“
Þessi játning Tyson kom öllum í opna skjöldu. Hann lét ummælin falla á blaðamannafundi þar sem hann tilkynnti að hann myndi snúa aftur sem hnefaleikalýsandi.
Upptöku af fundinum má sjá hér að neðan.