Orðrómur er á kreiki um að Kim Kardashian og Kanye West búi ekki saman lengur. Þær sögur eru þó stórlega ýktar.
Samkvæmt heimildum InTouch býr Kim Kardashian í hýbýlum móður sinnar Kris Jenner með dóttur þeirra North West á meðan West hefur haldið sig í piparsveinaíbúð sinni í Hollywood.
„Það er of mikil ringulreið í kringum hýbýli Kris Jenner fyrir West,“ sagði vinur raunveruleikastjörnunnar og bætti við: „West er alltaf að vinna en hann kemur og er með mæðgunum í nokkra klukkutíma en svo fer hann aftur í íbúðina sína.“
Þrátt fyrir að InTouch sé að reyna láta það líta út sem svo að það séu erfiðleikar í sambandinu er það ólíklegt. West hefur ekki verið að halda í íbúðina en hún er búin að vera á sölu síðan í febrúar.