Fyrsta stiklan úr myndinni Noah var frumsýnd í dag. Russel Crowe er þar í aðalhlutverki ásamt íslenskri náttúru en tökur fóru meðal annars fram hér á landi í sumar. Í myndinni leika einni Emma Watson, Jennifer Connelly, Logan Lerman og Anthony Hopkins. Darren Aronofsky leikstýrir en hann er þekktur fyrir að hafa leikstýrt myndinni The Black Swan. Í myndinni er fjallað um Nóa og örkina hans.
Gert er ráð fyrir að myndin verði frumsýnd þann 28. mars á næsta ári. .