Framleiðandi bandarísku kvikmyndarinnar 2 Guns sem Baltasar Kormákur leikstýrði segist vona að framhald verði gert á myndinni. Hann segist ætla ýta á eftir því en á endanum sé ákvörðunin aðalleikaranna og leikstjórans.
Randall Emmett framleiddi myndina. Hann segir að með réttu handriti verði þeir Mark Wahlberg, Denzel Washington og Baltasar Kormákur án efa til í að taka slaginn á nýjan leik.
Hann sagðist gera ráð fyrir að framhaldsmyndin myndi bera nafnið 3 Guns og jafnvel þótt 2 Guns 2 væri eiginlega betra nafn.