Árni Johnsen og Kristján Jóhannsson stjórna fjöldasöng á gamlárskvöld við áramótabrennu Þingahverfis við Elliðavatn. Tendrað verður í brennunni á gamlárskvöld kl. 20:30.
Brennan er staðsett sunnan við Gulaþing og er öllum velkomið að taka þátt í þessari mögnuðu upplifun og þenja raddböndin undir styrkri stjórn þeirra Árna og Kristjáns, eins og segir í fréttatilkynningu. Íbúar hverfisins eru hvattir til þess að koma gangandi.