Bono, söngvari hljómsveitarinnar U2, mun verja áramótunum í ljósadýrðinni á Íslandi. Hann lenti með einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli á fjórða tímanum í dag. Fréttavefurinn visir.is greinir frá þessu.
Bono dvelur hér ásamt fjölskyldu sinni og vinum og heldur aftur af landi brott á morgun. Tónlistarmaðurinn Damien Rice er einnig með í för.