David Beckham er yfirleitt með puttann á púlsinum þegar kemur að tísku, en ef hann er á villigötum í klæðaburði er eiginkona hans Victoria Beckham ekki lengi að benda honum á það.
Fyrrverandi fótboltamaðurinn var á dögunum staddur á blaðamannafundi í Miami en hann hyggst endurvekja áhuga fólks fyrir fótbolta í Miami, eins og fram kom á mbl.is. David Beckham er eigandi nýs knattspyrnuliðs.
Aðspurður hvort eiginkona hans Victoria Beckham veldi alltaf fötin á hann svaraði hann: „Nei. Ég klæði mig sjálfur. En hún er eiginkona mín og ég treysti skoðunum hennar. Ef hún segir við mig að ég sé púkalegur, þá þræti ég ekki við hana.“
Það hljómar ótrúlega að hann sé einhvern tíma púkalegur en það virðist gerast. „Það gerist ekki oft, sem betur fer. Það gerist samt stundum,“ viðurkenndi David Beckham.