Ástralski leikarinn Russell Crowe sendir kveðju til vina sinna á Íslandi á Twitter. Tilefnið er sýning á myndinni Noah hér á landi í kvöld.
„Halló vinir mínir á Íslandi. Góða skemmtun á frumsýningunni í kvöld. Takk fyrir að passa vel upp á okkur þegar við vorum að taka myndina upp #NOAH“ skrifar Crowe á Twitter.
Crowe fer með aðalhlutverk í myndinni, leikur sjálfan Nóa. Myndin verður frumsýnd á Íslandi í Sambíóunum í Egilshöll í kvöld.