Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), hefur stefnt eiganda hóruhúss í bænum Blaton í Belgíu fyrir að gefa því nafnið DSK, sem er víðfrægt fangamark Strauss-Kahns.
Lögmenn Strauss-Kahns segja nafngiftina ótvírætt tengja nafn skjólstæðings síns við hóruhúsið og starfsemi þess, ekki síst í Frakklandi, Belgíu og Sviss þar sem algengt er að skírskotað sé til hans í ræðu og riti sem „DSK“.
Þess er krafist að nafninu verði breytt þar sem Strauss-Kahn er víða þekktur undir fangamarki sínu, DSK. Eigandi hússins, hinn franski Dominique Alderweireld, er sakaður um að hafa á sínum tíma útvegað gleðikonur til þátttöku í kynlífsveislum sem Strauss-Kahn og félagar hans stóðu fyrir á Carltonhótelinu í Lille í Frakklandi.
Alderweireld gefur þá skýringu að nafnið sé stytting fyrir „Dodo Sex Klub“ og því sjálfum sér tengt, en hann gengur manna á meðal undir heitinu „Dodo la Saumure“. Hann segist áforma að reisa annað vændishús í Belgíu og nefna það Carlton, eftir hótelinu sem frægt er orðið fyrir kynsvall Strauss-Kahns og félaga þar.