Söngvarinn Justin Bieber sást með fyrirsætunni Yovanna Ventura á dögunum, en þau eyddu tíma saman á Venice-ströndinni í Kaliforníu.
Samkvæmt heimildum E! var söngvarinn, sem er 20 ára gamall, með Ventura, sem er 18 ára gömul, á ströndinni það sem þau fengu sér drykk og létu eins og þau væru kærustupar.
„Bieber vildi hitta hana. Hann leitaði hana uppi. Sambandið er ekki alvarlegt ennþá en þau hafa verið að hittast. Hann náði til hennar og þau byrjuðu að tala saman seint í mars,“ sagði heimildarmaður E! og bætti við: „Í apríl, þegar hann kom til Miami voru þau saman eina helgi á meðan hann var að taka upp í upptökuveri. Þau eru að kynnast hvort öðru Henni finnst hann vera almennilegur, sætur og mikill herramaður. Henni finnst hann vera góður strákur sem er líka myndarlegur.“
Svo virðist sem Bieber sé einnig heillaður af henni. „Bieber er mjög hrifinn af henni. Hann nýtur þess að vera nálægt henni. Hún er svo einlæg manneskja og honum finnst gott að tala við hana.“