Söngkonan Willow Smith, dóttir Will Smith og Jödu Pinkett Smith, hefur nokkrum sinnum fengið að heyra það að hún hagi sér ekki eftir aldri.
Nýlegt dæmi er ljósmynd sem birtist á Instagram, þar sem söngkonan, sem er 13 ára gömul, liggur í rúmi með leikaranum Moises Arias, sem er 20 ára gamall.
Leikarinn sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í Hannah Montana birti myndina af þeim þar sem hann situr er ber að ofan upp við vegg en Smith liggur á rúminu.
Samkvæmt heimildum Heat eyddi leikarinn myndinni eftir einhvern tíma, en þá höfðu aðdáendur þegar náð að deila henni á sínar síður.