James Cameron hyggst gera þrjár framhaldsmyndir í framhaldi af fyrstu Avatar kvikmyndinni sem kom út árið 2009. Framhaldsmyndirnar eiga að koma út á árunum 2016 til 2018.
Cameron og 20th Century Fox hafa staðfest að Sigourney Weaver muni leika hlutverk í myndunum en hún muni þó ekki leika sama karakter og hún lék í fyrstu myndinni, eða hina keðjureykjandi vísindakonu Dr.Grace.
Ásamt Sigourney munu þau Sam Worthington og Zoe Saldana, sem léku aðalhlutverkin í kvikmyndinni, einnig fá hlutverk í nýju myndunum. Auk þeirra mun Stephen Lang, sem lék erkióvin Avatar veranna, fá hlutverk.