Vefritið Hún.is slær því föstu á vefsvæði sínu að leikarahjónin bandarísku Brad Pitt og Angelina Jolie séu stödd hér á landi. Segir þar að þau hafi komið til landsins í hádeginu og dvelji í tvo daga.
Vefritið heldur því fram að gríðarleg öryggisgæsla hafi verið á Reykjavíkurflugvelli í tengslum við komu hjónanna.