Orðin grænmetisæta

Breska söngkonan Ellie Goulding.
Breska söngkonan Ellie Goulding. mbl.is/AFP

Ellie Goulding segist hrædd við lýtaaðgerðir og neitar öllum sögusögnum þess efnis að hún hafi farið í brjóstaaðgerð, að því er breska tímaritið Glamour greinir frá.

Söngkonan segist nýlega hafa byrjað á grænmetisfæði en hún var vön því að æfa allt of mikið til að reyna að stjórna þyngdinni. Hún segist hafa hlaupið á hverjum degi en hafi lagt of mikið á líkamann. Nú sé hún hætt að borða kjöt og fisk og hafi aldrei liðið betur.

Ellie Goulding segir að tónleikaferðalög sín og álagið við tónlistarferilinn hafi gert hana stressaða áður fyrr en að í dag nái hún að halda ró sinni í mismunandi aðstæðum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir