Bandaríska poppstjarnan Justin Timberlake, sem tryllti landsmenn í Kórnum um sl. helgi, hefur birt myndir frá dvöl sinni á Íslandi, sem hann segir að sé einn fegursti staður á jarðríki.
Óhætt er að fullyrða að tónleikar Timberlakes hafi slegið í gegn en kappinn fékk salinn oft til að syngja með sér.
Hátt í 17 þúsund manns gerðu sér ferð í Kórinn til að berja stjörnuna augum.
Hér að neðan má sjá myndskeið frá tónleikunum.