Orðrómur um að Paris Jackson, dóttir poppsöngvarans Michaels Jacksons, sé ófrísk hefur nú komist á kreik.
Nýverið fór hin 16 ára Paris út að borða á fínum veitingastað ásamt kærasta sínum og sögðu viðstaddir að hún hefði litið út fyrir að vera komin nokkra mánuði á leið.
„Hún skálaði tvisvar í vatni og magi hennar var útstæður, þetta fékk fólk til að tala,“ sagði heimildamaður Daily Star.
Þá sást einnig til Paris skoða trúlofunarhringa með kærastanum fyrir skömmu.