Seldu brúðkaupamyndirnar

Amal Alamuddin og George Clooney prýddu forsíðu Hello!
Amal Alamuddin og George Clooney prýddu forsíðu Hello!

Hjartaknúsarinn George Clooney gifti sig um helgina og vakti brúðkaupið mikla athygli meðal almennings. Allir virtust vera spenntir að sjá brúðkaupsmyndirnar og kjólinn sem Amal Alamuddin, eiginkona Clooney, klæddist.

Til að gera öllum til geðs seldu þau Clooney og Alamuddin brúðkaupsmyndir til birtingar í tímaritunum People, US og Hello! fyrir dágóða summu. Nú hafa þau hjónakorn ákveðið að gefa nánast allan ágóðan til góðgerðarmála.

„Allar myndirnar sem birtust munu bjarga mannslífum,“ sagði náinn vinur Clooney í viðtali sem birtis á TMZ.com en ágóðinn mun renna til Satellite Sentinel Project samtakanna sem vinna í þágu bágstaddra í Súdan

Ekki er vitað hversu mikið þau Clooney og Alamuddin fengu fyrir myndirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg