Ungi tískubloggarinn Karina Xavier lést í seinustu viku af völdum krabbameins. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen, sem kynntist Xavier í fyrra, minntist tískubloggarans á Instagram á fimmtudaginn.
Hin 34 ára Bündchen birti mynd af sjálfri sér ásamt Xavier og skrifaði: „Ég kynntist einstakri stúlku á síðasta ári, styrkur hennar, jákvæðni og lífsgleði veitti mér innblástur. Í dag varð hún að engli.“
Xavier og Bündchen áttu það sameiginlegt að vera frá Brasilíu.