Miðar á Iceland Airwaves seldust upp í dag en hátíðin verður haldin í sextánda sinn í ár, dagana 5. til 9. nóvember. Alls munu 220 listamenn koma fram á hátíðinni, þar af 67 erlendar sveitir.
Meðal þeirra sem fram koma eru Flaming Lips, The Knife, The War on Drugs, Caribou, Ásgeir, Samaris, Unknown Mortal Orchestra, Future Islands, Anna Calvi, How To Dress Well, Sin Fang, Hozier, Sóley, FM Belfast, Jungle, Klangkarussell, La Femme, Mammút, Kelela, Radical Face, Mugison, Eskmo, Valdimar, East India Youth, Árstíðir, Jaakko Eino Kalevi, Prins Póló, Agent Fresco, Ballet School, Ezra Furman, Lay Low, Kwabs, Son Lux, Tomas Barfod, The Vintage Caravan og Vök.
Dagskráin var tilkynnt nýlega en hátíðin fer fram á tólf tónleikastöðum í miðborginni en gestir geta náð í app og sett saman eigin dagskrá, segir í fréttatilkynningu frá hátíðinni.
Off-venue-dagskrá Iceland Airwaves, sem opin er öllum og ókeypis, verður kynnt á næstunni.