Skærgrænn köttur hefur sést á götum búlgörsku borgarinnar Varna. Talið er að óþokkar hafi málað hann og hefur m.a. verið stofnuð Facebook-síða þar sem hvatt er til þess að sökudólgunum verði refsað.
Í dag birtist svo frétt á vef Daily Mail þar sem kemur fram að ekkert hafi spurst til kattarins um hríð. Tvennt er talið koma til greina: Að einhver hafi rænt honum eða að græni liturinn hafi einfaldlega skolast af í rigningu.
Önnur kenning er einnig á kreiki hvað varðar lit kattarins. Hún er sú að hann hafi sofið á blautri málningu í garði þar sem byggingarverktaki geymir hluti.
Græni kötturinn nýtur gríðarlegra vinsælda á netinu og hafa mörg myndskeið af honum farið eins og eldur í sinu um netheima.