Fyrrverandi kærasti Britney Spears, sem var herflugmaður, var skotinn til bana í Afganistan í síðustu viku. Talið er að talibanar hafi drepið hann.
John Sundah var 44 ára þegar hann lést. Spears kynntist honum árið 2007 og þau áttu í ástarsambandi um tíma. Spears var þá að glíma við fíkniefnavanda, en Sundah hjálpaði henni að takast á við þennan vanda.
Spears er sögð miður sín yfir fréttum um að Sundah hafi látist.