Bandaríski leikarinn Chad Michael Murray hefur nú gengi í það heilaga. Umboðsskrifstofa leikarans hefur staðfest þetta eftir að það sást til Murray með giftingarhring.
Í frétt Us Weekly kemur að sú heppna sé leikkonan Sarah Roemer, en parið kynntist við tökur á sjónvarpsþættinum Chosen.
Í yfirlýsingu umboðsskrifstofu Murray kemur jafnframt fram að hjónin eigi von á sínu fyrsta barni.
„Chad og Sarah eru gífurlega hamingjusöm og spennt, og njóta lífsins saman,“ sagði í yfirlýsingu.
Murray er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Lucas Scott í sjónvarpsþáttunum One Tree Hill. Árið 2005 gekk hann að eiga meðleikkonu sína Sophia Bush. Þau skildu ári síðar.