Norðurírski leikarinn Richard Dormer, sem leikur í bresku sjónvarpsþáttunum Fortitude, kallar Ísland „goðsagnakenndan heim“ í viðtali við tímaritið Esquire.
Íslendingar þekkja Dormer mögulega úr þáttunum Game of Thrones en þar leikur hann Beric Dondarrion. Í Fortitude leikur hann hins vegar leyndardómsfulla lögreglustjórann Dan Anderssen. Var Dormer hér á landi í þrjá mánuði við upptökur á þáttunum í fyrra en þeir voru frumsýndir á Sky Atlantic í siðasta mánuði.
Segist Dormer hafa farið í tveggja daga þyrluferð um Vatnajökul og tveggja daga sjóferð milli fjarða á hraðbát. „Svo vorum við líka á vélsleðum. Þetta var eins og að vera í James Bond-mynd. Það var mjög spennandi.“
Aðspurður hvort hann hafi einhvern tímann lent í hættu svarar Dormer því játandi. „Í fyrsta skipti á vélsleðanum festist eldsneytisgjöfin inni og ég klessti á vörubíl á um 50 kílómetra hraða. Sem betur fer var ég með loðhúfuna mína, ég hefði annars getað höfuðkúpubrotnað. Ég held að þetta hafi gerst á fyrstu dögunum. Ég rétt slapp.“
Viðtalið við Dormer í heild má sjá hér.
Borgaði sig að taka upp á Íslandi