Susan Geston, eiginkona leikarans Jeff Bridges, sló á létta strengi á tökustað kvikmyndarinnar The Big Lebowski en Bridges fer með aðalhlutverkið í þeirri mynd. Geston bað dansara myndarinnar um að koma gerviskapahárum fyrir í samfesting sínum og kom þannig eiginmanni sínum á óvart.
Í einu atriði kvikmyndarinnar The Big Lebowski, sem kom út árið 1998, svífur karakter Bridges á milli lappanna á kvenkynsdönsurum. Geston ákvað að stríða eiginmanni sínum eilítið á tökustað og fékk dansarana til að spila með.
„Ég kem mér fyrir á hjólabrettinu og við gerum myndavélina tilbúna, þá lít ég upp. Ég sé brúsk af skapahárum koma undan einum samfestinginum, þá lít ég yfir á næsta dansara og þá sé ég annan brúsk. Og þann næsta, þetta var eins og frumskógur,“ sagði Bridges. Þessu var greint frá á ContactMusic. „Þær höfðu farið til förðunarfræðingsins og látið koma gervihári fyrir þarna niðri.“
Hér fyrir neðan má sjá umrætt atriði úr myndinni The Big Lebowski.