Leikarinn Jamie Dornan fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Fimmtíu gráir skuggar en sú mynd inniheldur samtals um 20 mínútur af kynlífssenum á milli Dornan og mótleikkonu hans, Dakota Johnson. Margar konur eru spenntar að sjá myndina en eiginkona Dornan, Amelia Warner, er ekki í þeim hópi.
„Eiginkona mín hefur ekki séð myndina og ég held að hún ætli ekki að gera það, í sannleika sagt,“ sagði Dornan í viðtali við Evening Standard. „Ég skil hana vel ef hún vill það ekki. Það eru atriði þarna sem innihalda þá hlið af mér sem vinir mínir og fjölskylda hefur aldrei séð áður.“