Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West gat ekki tekið sjálfsmynd í gær á BRIT-verðlaunahátíðinni þar sem myndavélin klikkaði á ögurstundu. Kim er örugglega miður sín þar sem sjálfsmyndir eru líf hennar og yndi.
Kim ætlaði að taka sjálfsmynd af sér ásamt kynnum hátíðarinnar, Ant Mcpartlin og Declan Donnelly. Myndavélin í þeim síma sem Kim notaði virkaði hins vegar ekki. „Hann er læstur, hann tók ekki mynd,“ sagði Kim.
Kim getur þó huggað sig við það að hún á heila „selfie-bók“ með sjálfsmyndum sem hún hefur tekið yfir ævina. Bók Kim heitir Kim Kardashian Selfish og kom út í maí í fyrra.