Fyrr á árinu var Tom Hanks gripinn glóðvolgur við karlbreiðslu (e.manspreading) í lest í New York. Nú hefur hann útskýrt afhverju það sem hann var að gera var hreint ekki karlbreiðsla yfir höfuð og þeir sem ásaka hann um slíkt hafa hreinlega rangt fyrir sér. „Heimska internet, ég var ekki að karlbreiða,“ sagði hann í The Late Late Show með spjallþáttastjórnandanum James Gorden.
Svo óheppilega vill til fyrir Hanks að með útskýringunni telja sumir hann einnig hafa gerst sekan um annan kynjaglæp, karlskýringu (e. mansplaining). Karlskýring er þegar karlmaður útskýrir eitthvað, yfirleitt fyrir konum, á yfirlætislegan hátt oft án þess að viðkomandi láti sér detta í hug að viðmælandinn gæti nú þegar haft jafn mikinn eða meiri skilning á fyrirbærinu sem útskýrt er.
Fyrri frétt mbl.is
Tom Hanks gripinn við karlbreiðslu