Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, var meðal ræðumanna á ráðstefnu fyrir ungt LGBT-fólk í Iowa í Bandaríkjunum um páskana.
Á facebooksíðu sinni greinir hún frá því að þar hafi einnig komið fram þekktur samkynhneigður glímukappi, Darren Young. Segir Jóhanna að þau hafi tekist aðeins á en svo virðist sem hún hafi tekið glímukappann í bakaríið þar sem hún segir hann hafa kvartað undan eymslum í handlegg daginn eftir.
Þá greinir Jóhanna frá því að henni hafi verið boðið í þinghúsið í höfuðborg ríkisins, Des Moines, og átt þar áhugavert spjall við þingmenn og ríkisstjóra Iowa.
Um páskana var ég meðal ræðumanna á ráðstefnu fyrir ungt LGBT-fólk í Iowa í Bandaríkjunum. Þar kom líka fram þekktur ...
Posted by Jóhanna Sigurðardóttir on Thursday, April 9, 2015