Nýjasti þáttur Áttunnar kom út í gær. Þar bar helst til tíðinda að ritstjóri Morgunblaðsins, Davíð Oddsson, svaraði nokkur spurningum á léttu nótunum. Davíð sagði spyrlinum, Ragnari Jónssyni, frá því að hann hefði eitt sinn verið jólasveinn og telur það mest krefjandi starf sem hann hefur gegnt á sínum ferli. Davíð talaði einnig um að jólasveinavinnan hefði verið skattfrjáls þar sem Giljagaur hefði samið við ríkisskattstjórann á sínum tíma.
Spyrillinn Ragnar Jónsson reynir hér að fá uppreisn æru þar sem hann tók viðtal við Þorvald Davíð á dögunum og komst það í sögubækurnar sem vandræðalegasta viðtal Íslands. Ragnar er ekki alslæmur í þessu viðtali þótt spurningar hans séu þvers og kruss og hann sé vægast sagt úti á þekju á köflum. En Davíð Oddsson er með reynslumestu Íslendingum í þessum efnum og lætur ekkert slá sig út af laginu. Nú er hægt að sjá þetta viðtal í heild sinni hér á vefnum okkar.
Fylgstu meira með sprelligosunum í Áttunni
www.facebook.com/attanofficial
www.instagram.com/attan_official
SnapChat: Attan_official
Watchbox: Attan_offcial