Strákarnir í Áttunni fara enn og aftur á kostum og inn á vefinn er komin besta refsingin þeirra hingað til. Nökkva Fjalari er hér refsað fyrir að hafa svindlað á Arnari í Paintball-keppninni sem var í þættinum á sunnudaginn. Þessi refsing er einföld. Strákarnir eru núna að taka starfsviðtöl við stelpur um að taka þátt með þeim í sumar. Nýttu þeir sér eitt viðtalið í refsinguna. Nökkvi tekur hér viðtal við Evu Dögg og hefur hún ekki hugmynd um það að glærusýningin sem Nökkvi fer með á fundinum er gerð af Arnari og hann veit því ekkert hvað hann er að fara að kynna fyrir henni. Þetta er bráðskemmtileg refsing sem fær mann til þess að brosa út í annað og rúmlega það.
Endilega skoðið meira efni frá þessum hressu strákum á vefnum www.mbl.is/attan ef ykkur líst vel á.
Fylgstu meira með þeim
www.facebook.com/attanofficial
www.instagram.com/attan_official
SnapChat: Attan_official
Watchbox: #attan_official
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="/mblplayer/i/163515/" style="border: 0;" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>