Leikarinn Channing Tatum, sem er hamingjusamlega giftur leikkonunni Jennu Dewan, greindi nýverið frá því að hann hefði áhuga á að fara í trekant með eiginkonu sinni og leikkonunni Emilia Clarke.
Tatum viðurkenndi þetta í viðtali við útvarpsmanninn Howard Stern en það var Clarke sjálf sem stakk upp á trekantinum fyrir nokkrum vikum.
„Ég var í eftirpartíi eftir Golden Globes-hátíðina og Channing fjandans Tatum kom upp að mér og glæsilega frúin hans, Jenna Dewan. Og ég var bara: „Ég ræð ekki við þetta. Getum við vinsamlegast gert eitthvað kynferðislegt saman. Þið eruð bæði falleg“,“ sagði Clarke í viðtali við Harper's Bazaar.
Tatum viðurkenndi í viðtalinu við Stern að þetta hefði átt sér stað í eftirpartíinu og grínaðist með að hann og eiginkona hans væru alveg til í trekant með Clarke sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Game of Thrones. „Ég myndi fara í lendarskýlu og grípa nokkur sverð,“ sagði Tatum.