Bam Margera hefur birt myndband á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir frá nýjustu fréttum af sjálfum sér og vinum sínum.
Margera segir í myndbandinu frá atvikinu þegar ráðist var á hann á Secret Solstice-hátíðinni um síðustu helgi.
„Sem betur fer var Nicky ekki á staðnum og sá mig verða laminn í klessu. Hún hefði sjálf endað með glóðurauga og í fangelsi. Hún er kjaftfor,“ segir Margera og bætir við:
„I live for this shit. Bring it the fuck on. Payback is a bitch motherfucker,“ segir Margera áður en undarlegt skot birtist af því sem ætla má vera hann fyrir utan Hallgrímskirkju.
Nicky, sem Margera nefnir í myndbandinu, er Nicole Boys, eiginkona hans sem hann giftist í Hafnarhúsinu á Íslandi árið 2013.
Myndbandið er tekið upp á Íslandi eins og sést glögglega.
Sjá frétt mbl.is: „Karma er raunverulegt“Here's a teaser to get everyone up to date... Earth Rocker... -Bam
Posted by Bam Margera on Thursday, June 25, 2015