Flestir sem hafa keypt, selt eða skoðað fasteign, til dæmis á fasteignavef mbl.is, vita að góðar myndir geta skipt miklu máli þegar kemur að því að selja fasteignina.
Það hefur gleymst að segja þessum fasteignasölum þetta vel geymda innanhúsleyndarmál, því á vefsíðunni Hræðilegar fasteignasalamyndir má sjá einhverjar verst teknu myndir af fasteignum allra tíma.
Þar má meðal annars sjá mjög einbeittan fasteignasala speglast í spegli á baðherbergi, mynd af prentara í horni á herbergi og af því sem virðist vera sameiginlegt baðherbergi og poolstofa.
Vilji fólk hins vegar sjá góðar myndir af fasteignum má benda á fasteignavef mbl.is.