Tónlistarkonan Gréta Salóme Stefánsdóttir lenti í alvarlegu bílslysi í Orlando í gærkvöldi. Hún deildi mynd á facebooksíðu sinni af sér á spítala í Orlando en þar hafði hún verið í um tíu klukkustundir.
Hún segir slysið hafa verið alvarlegt og kraftaverki líkast að farþegarnir sluppu með smávægileg meiðsl. Bíllinn sé hins vegar algjörlega í rúst.
Gréta Salóme segir bílbeltin hafa bjargað í þetta skipti og hvetur fólk til að nota þau alltaf þegar það sest upp í bíl. Þá bendir hún fólki á að njóta lífsins á meðan það getur.
Have never been more grateful or glad to be alive than today after spending 10 hours at a hospital in Orlando. We got...
Posted by Greta Salóme on Saturday, 3 October 2015