Ungfrú Kanada segir að sér hafi verið bannað að fara um borð í flugvél sem hún ætlaði að fara með frá Hong Kong til Peking þar sem Miss World keppnin fer fram. Ástæðan er sú að hún hefur tekið virkan þátt í mannréttindamálum.
Anastasia Lin, sem fæddist í Kína og er 25 ára leikkona, var valin Ungfrú Kanada í maí. Hún átti að vera fulltrúi lands síns í keppninni í ár en er meinað að koma til meginlands Kína. Þetta kemur fram í flestum helstu fjölmiðlum heims. Lin ætlaði með flugi frá Hong Kong í dag en fékk ekki að fara um borð.
Lin segir í samtali við AFP-fréttastofuna að kínversk yfirvöld reyni að þagga niður í fólki sem þori að segja skoðun sína. Hún ræddi við fjölmiðla á flugvellinum í Hong Kong í dag.
Leikkonan hefur komið fram í kvikmyndum þar sem fjallað er um málefni sem koma við kaunin á stjórnvöldum í Kína, svo sem spillingu og trúfrelsi.
Hún hvetur fjölmiðla til þess að spyrja hvers vegna Kínverjar hafi áhyggjur af fegurðardrottningu.
„Spyrjið þá hvort þau muni einnig synja keppendum á Ólympíuleikum um að taka þátt í vetrarólympíuleikunum bara vegna þess að þeir eru ekki sama sinnis og Kommúnistaflokkurinn.“
Í júlí var tilkynnt að vetrarólympíuleikarnir yrðu haldnir í Peking árið 2022. Sumarleikarnir voru haldnir þar árið 2008 og með þessu verður Peking eina borgin sem hefur haldið hvora tveggju leikana.
Lin hefur mótmælt mannréttindabrotum í Kína, meðal annars gagnvart þeim sem iðka falun gong en kínversk stjórnvöld hafa bannað samtökunum að starfa í landinu og segja hreyfinguna af hinu illa. Lin er meðal þeirra sem stunda falun gong.