Ungfrú Kólumbía var fyrir mistök kynnt sem ungfrú heimur (Miss Universe) í gærkvöldi í beinni útsendingu sem milljónir um allan heim fylgdust með. Henni var ákaft fagnað en síðan kom í ljós að það var ungfrú Filippseyjar sem var réttkjörin fegursta kona heims.
Það var kynnir keppninnar, bandaríski grínistinn SteveHarvey, sem á heiðurinn af mistökunum en honum tókst að lesa vitlaust af spjaldinu. Hann kynnti því ungfrú Kólumbíu, Ariadna Gutierrez, sem alheimsfegurðardrottningu.
Gutierrez var ákaft fagnað þegar kórónan var sett á höfuð hennar og hún var að vonum ánægð þar sem hún veifaði til aðdáenda og sendi fingurkossa í allar áttir. En Harvey neyddist til þess að stöðva fagnaðarlætin og biðjast afsökunar og viðurkenna mistökin. Hið rétta var að Ungfrú Kólumbía hafnaði í öðru sæti en PiaAlonzoWurtzbach, sem er Ungfrú Filippseyjar, er MissUniverse 2015.
Wurtzbach er afar þekkt í heimalandinu bæði fyrir leik og sem þáttastjórnandi. Henni var eðlilega brugðið og sagði aðeins: Hvað?
Harvey reyndi að útskýra mistökin en lítið heyrðist til hans vegna hávaða frá áhorfendum sem ýmist fögnuðu eða bauluðu.