Missti næstum af fæðingunni

Louis Tomlinson er í hljómsveitinni One Direction.
Louis Tomlinson er í hljómsveitinni One Direction. AFP

Louis Tomlinson, meðlimur drengjasveitarinnar One Direction, varð faðir í fyrsta sinn á dögunum þegar barnsmóðir hans Briana Jungwirth ól dreng. Tomlinson og Jungwirth kynntust snemma á síðasta ári og áttu í skammvinnu sambandi en eru ekki par.

Frétt mbl.is: Tomlinson orðinn faðir

Samkvæmt dagblaðinu The Sun missti Tomlinson þó næstum af fæðingu sonarins, sem hlotið hefur nafnið Sydney Rain, þar sem foreldrar Jungwirth meinuðu honum aðgang að stofunni þar sem fæðingin fór fram.

Fregnir herma því að tónlistarmaðurinn hafi bróðurpart fæðingarinnar setið í bíl sínum fyrir utan spítalann. Hann hafi þó um síðir fengið að koma inn, skömmu áður en drengurinn kom í heiminn.

Tomlinson flutti fyrir skemmstu búferlum til Los Angeles til þess að geta tekið virkan þátt í uppeldi á syni sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir