Kim, Kanye og Kourtney á Íslandi

Kim Kardashian og Kayne West.
Kim Kardashian og Kayne West. AFP

Hjónin Kim Kardashian og Kanye West lentu á Keflavíkurflugvelli nú fyrir skömmu. Systir Kardashian, Kourtney, var einnig með í för ásamt lífvörðum. 

Þau komu með vél Icelandair frá New York í Bandaríkjunum og verða hér á landi til 20. apríl. Stjörnurnar ferðuðust á Saga Class og höfðu hvert um sig tvö sæti í vélinni. 

Kim deildi útsýninu úr flugvélinni með fylgjendum sínum á Snapchat.
Kim deildi útsýninu úr flugvélinni með fylgjendum sínum á Snapchat. Ljósmynd/Snapchat

Jonathan Cheban, besti vinur Kim, er einnig með í för, en hann kemur reglulega fyrir í þáttunum Keeping up with the Kardashians. Samkvæmt Snapchat aðgangi Kourtney stefna stjörnurnar á smá hvíld áður en haldið verður út í daginn. 

Samkvæmt heimildum mbl.is er tilgangur Íslandsferðarinnar hjá Kanye að taka upp tónlistarmyndband við lag af nýútkominni plötu sinni: The Life of Pablo. 

Kourtney og Jonathan Cheban voru ánægð með ferðamátann eftir lendingu …
Kourtney og Jonathan Cheban voru ánægð með ferðamátann eftir lendingu í Keflavík. Ljósmynd/Snapchat
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Kröfurnar í vinnunni standa í vegi fyrir því að þú getir sinnt heimilinu sem skyldi. Sannar játningar eru viðfangsefni kvöldsins, þú gerir þitt með því að hlusta.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Jónsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Unnur Lilja Aradóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Kröfurnar í vinnunni standa í vegi fyrir því að þú getir sinnt heimilinu sem skyldi. Sannar játningar eru viðfangsefni kvöldsins, þú gerir þitt með því að hlusta.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Jónsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Unnur Lilja Aradóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson