Klæðaburður Kim Kardashian í miðborg Reykjavíkur hefur vakið nokkra athygli. M.a. e fjallað um hann á fréttavefnum news.com.au þar sem segir að athyglin sé ekki komin til af góðu.Kim spókaði sig á Laugaveginum íklædd drapplituðum spandex-galla og pels við hvíta strigaskó sem hannaðir voru af eiginmanni hennar, Kanye West.
Daily Mail lýsir klæðnaðinum sem undirklæðnaði en Hollywood Life er þó hrifnari af fatavalinu og segir Kim hafa leikið sér með ímyndunarafl áhorfenda.