Olivia Munn ættleiðir

Olivia Munn er hrifin af hundum.
Olivia Munn er hrifin af hundum. AFP

Leikkonan Olivia Munn hefur stækkað fjölskylduna, en á dögunum ættleiddi hún lítinn hvolp. Hvolpurinn, sem hlotið hefur nafnið Frank Rodgers, er flækingshundur en Munn ættleiddi hann hjá dýraathvarfinu Love Leo Rescue.

„Hittið Frank Rodgers. Gælunafn Frankie, en kallaður Herra Frank á viðskiptafundum.“

Leikkonan á fyrir tíkina Chance, en hún var einnig eitt sinn flækingshundur.

Margar stórstjörnur kjósa að ættleiða hunda, í stað þess að kaupa þá dýrum dómum. Þá tóku fyrirsætan Gisele Bündchen og fjölskylda hennar að sér hundinn Fluffy á dögunum. George Clooney og eiginkona hans Amal Clooney eiga einnig tvo hunda sem báðir voru eitt sinn á flækingi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson