Sundáhrifin verðlaunuð í Cannes

Sólveig Anspach.
Sólveig Anspach. mbl.is/Halldór Kolbeins

Sundáhrifin, hin fransk/íslenska gamanmynd Sólveigar Anspach heitinnar, vann í gærkvöldi til SACD-verðlaunanna fyrir bestu frönskumælandi kvikmyndina á lokahófi Director's Fortnight-dagskrárinnar á kvikmyndahátíðinni í Cannes, einni stærstu og virtustu kvikmyndahátíð heims. Er um mikinn heiður að ræða fyrir alla aðstandendur myndarinnar.

Sundáhrifin hafa hlotið góðar viðtökur og góða dóma, að því er kemur fram í tilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Myndin fjallar um Samir, sem er staðráðinn í því að bæta ráð sitt gagnvart sundkennara sínum Agathe, sem hann er yfir sig ástfanginn af. Hann eltir hana alla leið til Íslands en það kemur babb í bátinn þegar hann verður fyrir rafstraumi og missir minnið. Hvernig getur Samir bætt fyrir eitthvað sem hann man ekki? Getur Agathe hjálpað honum að endurheimta minnið, og um leið ást hans í hennar garð?

Sólveig Anspach leikstýrði Sundáhrifunum og skrifaði handritið ásamt Jean-Luc Gaget. Skúli Malmquist framleiddi myndina fyrir Zik Zak kvikmyndir ásamt Patrick Sobelman sem framleiddi fyrir Ex Nihilo. Í stórum hlutverkum í myndinni eru Didda Jónsdóttir, Frosti Jón Runólfsson, Ingvar E. Sigurðsson og Kristbjörg Kjeld. Með aðalhlutverk fara Florence Loiret Caille og Samir Guesmi. Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er hið franska Le Pacte.

Tökur fóru fram haustið 2014 og vorið 2015 í Frakklandi og á Íslandi. Meðan á tökum stóð háði Sólveig baráttu við illvígt krabbamein en lét þá baráttu ekki aftra sér frá því að klára tökur og eftirvinnslu myndarinnar að mestu leyti, að því er kemur fram í tilkynningunni. 

Þetta er í þriðja sinn sem kvikmynd eftir Sólveigu er valin til þátttöku á Cannes. Árið 2001 var franska heimildamyndin Made in the USA einnig valin til þátttöku í Director's Fortnight-hluta hátíðarinnar og fór það svo að myndin vann François Chalais-verðlaun hátíðarinnar. Árið 2003 var leikna kvikmyndin Stormviðri (einnig gerð í samvinnu við Frakka) valin til þátttöku í Un Certain Regard-hluta hátíðarinnar.

Sundáhrifin er þriðja leikna kvikmyndin í fullri lengd eftir íslenskan leikstjóra sem er valin til þátttöku í Director's Fortnight-hluta Cannes-hátíðarinnar. Árið 1984 var Atómstöðin eftir Þorstein Jónsson valin til þátttöku og árið 2011 Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen