Stikla úr nýrri teiknimynd Disney-Pixar, Finding Dory, sem kom út á þriðjudag hefur vakið athygli en í henni bregður fyrir tveimur karakterum sem virðast vera fyrsta lesbíska parið í Pixar-mynd.
Þrátt fyrir að það hafi ekki komið opinberlega fram af hálfu Pixar að konurnar tvær eigi að vera par hafa fjölmargir lýst yfir gleði sinni á Twitter og fagnað fjölbreytileikanum.
Spjallþáttadrottningin Ellen DeGeneres talar fyrir aðalsöguhetju myndarinnar, Dory, en DeGeneres er sjálf opinberlega samkynhneigð og hefur verið ötull talsmaður hinseginsamfélagsins.
Finding Dory er framhald af Finding Nemo-teiknimyndinni sem kom út árið 2003. Í nýju myndinni er það ekki Nemo sem týnist, en myndin mun snúast um leit hins gleymna gullfisks Dory að fjölskyldu sinni.
Fyrir neðan má sjá stikluna í heild, en parinu bregður fyrir á mínútu 1:07.
omg finally, Pixar put a lesbian couple in #FindingDory this is the time to celebrate 🎉 pic.twitter.com/uPiV1nFp7A
— grace (@ItsGraceBoylan) May 24, 2016
That new #FindingDory trailer released this morning? I think that's the first lesbian couple in a @DisneyPixar film. pic.twitter.com/S1wwJEOeWT
— Matthew Gottula (@DLthings) May 24, 2016