Andri Davíð Pétursson bar sigur úr býtum í World Class-kokteilakeppninni sem fór fram í Hörpu í gærkvöldi. Hann mun taka þátt fyrir hönd Íslands í alþjóðlegri úrslitakeppni í Miami í haust. Keppnin í Miami fer ört stækkandi og í ár eru yfir 60 lönd skráð til leiks.
Gærdagurinn var langur hjá Andra og hinum barþjónunum en lokakeppnin stóð yfir frá morgni til kvölds. Fyrst kepptu barþjónar í þema hafsins í Hvalasafninu og gerðu tvo drykki. Eftir hádegi var þema jarðarinnar í Grasagarðinum þar sem barþjónar gerðu þrjá drykki. Þá var tilkynnt hvaða þrír barþjónar voru efstir til að keppa í Háalofti Hörpu í himinþemanu.
Efstu þrír barþjónarnir kepptu þá í lokakeppninni sem var hraðakeppni. Barþjónar höfðu tíu mínútur til að hrífa dómara og áhorfendur með sér með hraða og frumlegheitum. Í lokakeppninni kepptu þeir Orri Páll Vilhjálmsson frá Apótekinu og Teitur Ridderman Schiöth frá Slippbarnum á móti Andra.
Leitað að besta barþjóni Íslands