Swift „dömpaði“ Harris í gegnum síma

Taylor Swift hætti með Calvin Harris í gegnum síma samkvæmt …
Taylor Swift hætti með Calvin Harris í gegnum síma samkvæmt heimildum TMZ. Á myndinni sést hún faðma fyrrverandi kærastann. AFP

Bandaríska stórstjarnan Taylor Swift „dömpaði“ Calvin Harris í gegnum síma. Slúðurvefmiðillinn TMZ greinir frá og bendir á hræsnina í því þar sem Swift kvartaði undan því á sínum tíma að Joe Jonas í strákabandinu Jonas Brothers hafi hætt með henni í gegnum síma.

Samkvæmt heimildarmönnum TMZ hringdi Swift í Harris frá Nashville stuttu eftir að hann lenti í bílslysi og batt enda á sambandið. Swift er sögð hafa verið tvístígandi í símtalinu og sagt við Harris að hún þyrfti smá svigrúm.

Að sögn heimildarmanns TMZ komu sambandsslitin eins og þruma úr heiðskíru lofti fyrir Calvin Harris sem tók fréttunum ekki vel. Annar heimildarmaður TMZ segir aftur á móti að Swift hafi verið mjög ljúf við Harris og farið til Los Angeles til að heimsækja hann eftir að hann lenti í bílslysinu.

Hér að neðan má sjá Taylor Swift í spjallþætti hjá Ellen DeGeneres árið 2008 þar sem hún ræddi um sambandsslit þeirra Jonas á sínum tíma og hvernig hann hætti með henni í gegnum síma.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg