Breska leikkonan Sophie McShera er stödd hér á landi. Íslendingar þekkja McShera líkalega best fyrir hlutverk hennar í Downton Abbey, þar sem hún lék eldhússtúlkuna Daisy sem aðstoðar frú Patmore á heimili Crawley-fjölskyldunnar.
Samkvæmt heimildum mbl.is fékk McShera sér kvöldverð á veitingastaðnum Gló á Laugavegi í gærkvöldi, ásamt fimm manna hópi sem hún var með, og gaf sér tíma í myndatökur með aðdáendum sem komu auga á hana.