Jón Gnarr mun leikstýra Áramótaskaupinu í ár. Höfundar þess verða auk Jóns þau Helga Braga Jónsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Þorsteinn Guðmundsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.
Þetta kemur fram á vef RÚV.
Fram kemur að öll, nema Katla Margrét, hafi verið í Fóstbræðragenginu. Katla var einn höfunda þáttanna Stelpurnar sem sýndir voru á Stöð 2.
Þetta kom fram í þættinum Sjónvarp í 50 ár: Skemmtiefni sem sýndur var á RÚV í kvöld.