Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hlaut þrenn verðlaun á hinni nýafstöðnu Molodist-kvikmyndahátíð í Kiev í Úkraínu. Myndin fékk áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, FIPRESCI-verðlaun samtaka gagnrýnenda og hlaut Baldur Einarsson sérstaka viðurkenningu fyrir hlutverk sitt, en hann var eini leikarinn sem hlaut verðlaun á hátíðinni.
Anton Máni Svansson, framleiðandi Hjartasteins, var viðstaddur hátíðina og veitti verðlaununum viðtöku. „Hjartasteinn var heimsfrumsýnd, fyrst íslenskra kvikmynda, í keppni á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september og hefur síðan þá tekið þátt á fjölda virtra alþjóðlegra kvikmyndahátíða og alls unnið til átta alþjóðlegra verðlauna,“ segir Anton Máni, sem er ásamt Guðmundi leikstjóra á leið til Þýskalands fyrir þýska frumsýningu myndarinnar. Að hans sögn er um þessar mundir verið að sýna myndina í Danmörku og Brasilíu, en Hjartasteinn verður frumsýnd í kvikmyndahúsum hérlendis í kringum áramótin.